Um okkur

Verslunin Gatsby slf var stofnuð í nóvember 2018 eftir mjög stuttan aðdraganda. 

Áratugirnir 1920-1940 hafa alltaf heillað mig því það var svo margt í gangi þarna á þessum tíma, tónlistin, tískan og artdeco stíllinn, þrátt fyrir heimskreppu með tilheyrandi skorti.

Þegar hugmyndin um að opna verslun í þessum anda fæðist varð ekki aftur snúið. Mig langaði að opna verslun sem sérhæfði sig í kjólum og fylgihlutum í Flapper stílnum sem einkenndi þessi ár. Síðan hafa hlutirnir heldur betur undið upp á sig og í dag erum við með mikið úrval af síðkjólum, flapperkjólum, og venjulegum kjólum ef má orða það þannig. 

Allt sem er til sölu í Gatsby er handvalið með þetta þema í huga. Það er gaman að geta boðið viðskiptavinum okkar vörur sem mér finnst vera í anda þessa tímabils.

Með kaupum á vöru frá okkur vona ég svo sannarlega að þú kæri viðskiptavinur verðir ánægður með val þitt og þjónustuna okkar.


Ykkar, Gugga.