Skilmálar

 Þegar þú leggur inn pöntun hjá gatsbykjolar.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

 

Afgreiðsla og afhending pantana

Afgreiðslutími pantana er að jafnaði 1-4 virkir dagar. Allar pantanir eru sendar heim að dyrum, á næsta pósthús með Íslandspósti eða með Dropp að vali viðskiptavinar. Sé pöntun gerð fyrir kl 12:00 virka daga verður hún afgreidd samdægurs. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. Einnig er hægt að sækja vörur í verslun okkar að STRANDGÖTU 49 HAFNARFIRÐI á OPNUNARTÍMA VERSLUNARINNAR

Sendingarkostnaður er kr. 990 fyrir sendingar á pósthús, kr. 1500 fyrir heimsendingar þar sem heimsendingarþjónusta er á vegum Íslandspósts. Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir kr.15.000 eða meira nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Sé greitt fyrir heimsendingu með pósti ber Gatsby slf ekki ábyrgð á að Íslandspóstur veiti síðan ekki þá þjónustu . 

Um pantanir sem sendar eru með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts eða Dropp um afhendingu vörunnar. Gatsby slf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni eftir að hún er send frá Gatsby slf er tjónið á ábyrgð kaupanda.


Greiðslumöguleikar.

Hjá Gatsby slf getur þú greitt me debetkorti, kreditkorti, Apple Pay eða Netgíró. Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Saltpay. Gatsby slf tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Verð

Gatsby slf áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og ógilda pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita um væntanlegan komutíma eða endurgreiðum sé þess óskað.

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum, fá henni skipt í aðra vöru eða fá hana endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Ef um gjöf er að ræða þá er eingöngu boðið upp á vöruskipti eða inneignarnótu, ekki endurgreiðslu. Greiðslukvittun þarf að fylgja við vöruskil eða -skipti.

Vöru fæst eingöngu skilað eða skipt sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Sé vara innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar samkvæmt kvittun.

Útsöluvöru fæst hvorki skipt né skilað.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Gatsby slf


Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við endursendingakostnað, eða endurgreiðum sé þess óskað. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á gatsbykjolar@gmail.com með upplýsingum um galla vörunnar. 

 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum.

 

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.

  

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á gatsbykjolar@gmail.com